ALM Fjármál
Um fjármál af fagmennsku
Hvað þýðir ALM?
Starfsmenn
Hluthafar
Staðsetning
Mikilvægar upplýsingar

Starfsmenn


Arnar Jónsson

arnar@almfjarmal.is
s: 895 1425

Arnar hefur langa reynslu af innlendum og alþjóðlegum fjármálamarkaði. Arnar hóf störf hjá Landsbanka Íslands hf. 1997, fyrst á alþjóða- og fyrirtækjasviði en síðar (1997-2003) sem sérfræðingur bankans í afleiðuviðskiptum, þar sem mest áhersla var lögð á gjaldeyris- og vaxtamarkað. Frá 2003-2008 gegndi Arnar starfi forstöðumanns gjaldeyris- og afleiðumiðlunar, skuldastýringar, fyrir samstæðuna.

Áður en Arnar hóf störf hjá Landsbankanum, starfaði hann sem aðalféhirðir Hf. Eimskipafélags Íslands (1995-1997) og sem fjármálastjóri Stjórnunarfélags Íslands (1990-1993).

Arnar hefur mikla þekkingu og reynslu af innlendum fjármálamarkaði. Hann hefur lagt sérstaka áherslu á gjaldeyris- og vaxtamarkað, en einnig uppbyggingu á sérhæfðri þjónustu til fyrirtækja s.s. skuldastýringu og afleiðuviðskiptum. Arnar hafði yfirumsjón með gjaldeyris- og afleiðuviðskiptum til fyrirtækja og fagfjárfesta og er því með mikil tengsl við íslensk fyrirtæki, stofnanir og fjárfesta.

Arnar var stundakennari við Háskóla Íslands í Alþjóðafjármálum (2001-2006), en einnig í sömu grein við Háskólann í Reykjavík fyrst 2002-2003 og síðar 2005-2006. Hann hefur skrifað fjölda greina um áhættustýringu fyrirtækja og gengis- og peningamál í dagblöð og tímarit (1998-2008).

Arnar er með próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands (1990) og MSc (Cand.Merc) í fjármálafræðum frá Handelshojskolen í Kaupmannahöfn (Copenhagen Business School, 1995).
Hann hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum skv. lögum um fjármálafyrirtæki .

Hjörtur H. Jónsson

hjortur@almfjarmal.is
s: 860 6440

Að loknu námi hóf Hjörtur starfsferil sinn hjá Háskólanum á Akureyri, þar sem hann í þrjú ár gegndi stöðu lektors við Sjávarútvegsdeild.

Frá Háskólanum á Akureyri lá leiðin til Íslenskrar erfðagreiningar þar sem hann starfaði á sjötta ár, lengst af sem hópstjóri efnaskiptasjúkdóma í tölfræðideild ÍE.

Hjörtur gekk til liðs við Gjaldeyris- og afleiðumiðlun Landsbankans snemma árs 2004 þar sem hann vann að uppbyggingu og styrkingu ráðgjafar og afleiðumiðlunar bankans til fyrirtækja og fjárfesta. Vinna sem síðan leiddi hann til útibús Landsbankans í London þar sem hann leiddi uppbyggingu afleiðumiðlunar og markaðsviðskipta Landsbankans til alþjóðlegra viðskiptavina bankans.

Hjörtur hefur í störfum sínum á fjármálamarkaði öðlast reynslu og þekkingu á flestum kimum fjárfestingabankastarfsemi, allt frá miðlun og bókun viðskipta til stýringar afleiðubóka, áhættu- og eignastýringar og samstarfs við opinbera eftirlitsaðila á Íslandi og í Bretlandi.

Hjörtur lauk BSc gráðu í kennilegri eðlisfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í öreindafræði frá Háskólanum í Karlsruhe. Hann hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum skv. lögum um fjármálafyrirtæki á Íslandi og prófi í fjármálaregluverki skv. reglum breska Fjármálaeftirlitsins.
 

Ísak S. Hauksson

isak@almfjarmal.is
s: 618 9353

Ísak hefur langa reynslu úr fjármálageiranum. Ísak hóf störf hjá Landsbankanum árið 1998. Þar vann hann m.a. að gjaldmiðlastýringu fyrirtækja og lífeyrissjóða og ráðgjöf varðandi markaðsáhættu. Síðustu árin hjá Landsbankanum starfaði hann á Verðbréfasviði og hafði umsjón með eignastýringu og ráðgjöf tengda gjaldeyri, vöxtum, hrávörum og öðrum óhefðbundnum eignaflokkum.

Áður en Ísak hóf störf hjá Landsbankanum starfaði hann við rannsóknir í eðlisfræði hjá Raunvísindastofnun Háskólans, við Heriot-Watt Háskóla í Edinborg og við Kyoto Háskóla í Japan. Hann er höfundur eða meðhöfundur á yfir 30 ritrýndum vísindatímaritum í hagnýtri eðlisfræði.

Ísak hefur mikla reynslu af eigna- og skuldastýringu og áhættustýringu. Ísak hefur unnið með mörgum fyrirtækjum við innleiðingu á áhættustýringarstefnu og notkun afleiðna við áhættustýringu. Ísak leiddi uppbyggingu á eignastýringu óhefðbundinna eignaflokka hjá Landsbankanum. Ísak hefur í gegnum tíðina veitt mörgum fyrirtækjum og lífeyrissjóðum ráðgjöf varðandi þróun og horfur á gjaldeyris- og vaxtamörkuðum.

Ísak er með B.Sc. í eðlisfræði frá Háskóla Íslands (1989), og doktorspróf frá Heriot-Watt Háskóla, Edinborg (1996).
Hann hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum skv. lögum um fjármálafyrirtæki .


Sigurður Kr. Egilsson
sigurdur@almfjarmal.is
s: 865 6304
Sigurður hefur langa reynslu af bæði innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.  Sigurður byrjaði hjá Kaupþingi hf. 1998 hjá áhættustýringu bankans.  Ári seinna eða 1999 hóf hann störf á eignastýringasviði bankans og var þar allt til ársins 2010.  Lengst af var hann forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta en starfaði jafnframt á eignastýringarsviði bankans erlendis.

Sigurður hefur öðlast mikla reynslu og  þekking af eignastýringu og hefur borið ábyrgð á og stýrt öllum helstu flokkum verðbréfa.  Hann hefur verið sjóðstjóri bæði sérgreindra innlendra og erlendra hlutabréfa– og skuldabréfasafna, sem og dreifðra verðbréfasafna.

Eignastýring fagfjárfesta hjá Kaupþing, sem hann veitti forstöðu frá 2003 fram á haust 2007 bar ábyrgð á stýringu eigna upp á 170 milljarða króna og bar meðal annars ábyrgð á eignastýringu Frjálsa lífeyrissjóðsins.

Sigurður hefur reglulega skrifað greinar í fræðirit og dagblöð sem fjalla um eignastýringu, og var meðal annars ritstjóri Lífeyrisbókarinnar sem var sniðin að stjórnendum lífeyrissjóða.

Sigurður útskrifaðist frá verkfræðideild Háskóla Íslands vorið 1998 (Cand. Scient.) og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum skv. lögum um fjármálafyrirtæki.




ALM Fjármál - s: 460 6440