Fjármögnun
Fjármögnun felur í sér sölu óskráðra verðbréfa til fagfjárfesta. ALM aðstoðar fyrirtæki við að útbúa gagnaherbergi sem tryggir að fjárfestar fái nauðsynleg gögn til að byggja tilboð sitt á. ALM aðstoðar við að finna fjárfesta og meta hæfi þeirra til að taka þátt í kaupum verðbréfa. ALM er í dag í samskiptum við hóp fagfjárfesta sem hafa sýnt áhuga á að fjárfesta í rekstrarfélögum og fasteignafélögum. Markmiðið með vönduðum undirbúningi er að búa til faglega umgjörð um söluferlið, hraða söluferli eftir undirbúning, og minnka líkur á ágreiningi á meðan sölu stendur eða eftir sölu.

ALM gerir frumathugun á verkefnum, aðilum að kostnaðarlausu. Verkefnin þurfa að uppfylla lágmarkskröfur samkvæmt fjárfestingastefnu ALM. Frekari upplýsingar um skilyrði, hafið samband við isak@almfjarmal.is
Nauðsynlegt er að undirbúa vel fjármögnun með því að taka saman öll skjöl er varða fyrirtækið/verkefnið (leigusamningar, fjármögnun, verksamningar, byggingaleyfi, o.s.fr.v.). Einnig þarf að gera greinargóða lýsingu á verkefni, fyrirtæki, stjórnendum og stjórn.
Aðgangur að gögnum er eingöngu veittur eftir að áhugasamir fjárfestar hafa undirritað trúnaðaryfirlýsingu. Mikil áhersla er lögð á góða framsetningu gagna og trúnað. Með því að undirbúa vel gagnapakka sem fjárfestar hafa aðgang að og gera hann aðgengilegan strax í upphafi söluferlis er hægt að hraða söluferlinu og auka áhuga fjárfesta á verkefni. ALM heldur utan um samskipti við fjárfesta og heldur lista yfir þau gögn sem þeir fá afhent.
|