Einstaklingar ALM býður einstaklingum fjölbreytta þjónustu á sviði fjármála, eða allt frá heildstæðri ráðgjöf um fjármál yfir í afmörkuð verkefni á sviði ráðgjafar, stýringar og eftirlits. ALM leggur í störfum sínum áherslu á virkt samstarf með viðskiptavinum þar sem þjónustan er löguð að þörfum hvers og eins, en almennt leggur ALM áherslu á eftirfarandi lykilatriði:
- Yfirsýn – Að áður en að ákvörðunum kemur sé til staðar góð yfirsýn yfir alla þætti sem máli skipta
- Skilning – Að ákvarðanir byggi á góðum skilning á samhengi ólíkra þátta og hvaða áhrif þær eru líklegar til að hafa
- Óhæði og gegnsæi – Að engir hagsmunaárekstrar geti varpað vafa á að ákvarðanir séu teknar með hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi
- Eftirlit – Að ákvörðunum sé fylgt eftir með virku eftirliti og þær endurskoðaðar ef árangur er ekki í takt við væntingar
ALM leggur áherslu á sveigjanlega þjónustu þar sem fundin er rétta lausnin fyrir aðstæður og viðfangsefni sérhvers viðskiptavinar.
|
|
|