ALM Fjármál
Um fjármál af fagmennsku
Ráðgjöf
Eignastýring
Áhættustýring

Eignastýring

Eignastýring ALM byggir á grunngildum fyrirtækisins um óhæði, sjálfstæði og gegnsæi í þóknunum og að vera leiðandi í eignastýringu á Íslandi.

Ráðgjafarsamningur um eignastýringu
Hér gegnir ALM hlutverki sjálfstæðs og óháðs ráðgjafa. ALM vinnur nauðsynlega greiningarvinnu er varðar t.d. markaðsaðstæður, val á fjárfestingakostum/stýringaraðilum, og framkvæmd viðskipta og kemur  eftir atvikum að mótun fjárfestingastefnu og/eða áhættustefnu og hefur eftirlit með árangri og ávöxtun.  Niðurstöður af vinnu ALM eru á formi reglulegra og óreglulegra skýrslna og funda með viðskiptavinum, allt eftir því hvað hentar hverju sinni, en ákvarðanir um viðskipti eru á hendi viðskiptavinanna sjálfra.

Samningur um virka stýringu
Líkt og þegar um ráðgjafarsamning er að ræða þá vinnur ALM nauðsynlega greiningarvinnu er varðar t.d. markaðsaðstæður, val á fjárfestingakostum/stýringaraðilum, og framkvæmd viðskipta og kemur  eftir atvikum að mótun fjárfestingastefnu og/eða áhættustefnu og hefur eftirlit með árangri og ávöxtun.  Í framhaldi af þessari vinnu tekur ALM ákvarðnir um viðskipti í samræmi við heimildir í stýringarsamningi og gefur fyrirmæli um þau á markaði með umboði viðskiptavinar. Niðurstöður af vinnu ALM eru á formi reglulegra og óreglulegra skýrslna og  viðskiptayfirlita auk funda með viðskiptavinum.

Starfsmenn búa yfir mikilli þekkingu og reynslu af innlendum og erlendum mörkuðum og öllum eignaflokkum og tegundum fjármálagerninga.


ALM Fjármál - s: 460 6440