ALM Fjármál
Um fjármál af fagmennsku
Heildstæð fjármálaráðgjöf
Eignastýring
Fjárfestingaráðgjöf
Eftirlit með ávöxtun og áhættu
Verðskrá
Áhættuþættir fjármálagerninga

Eftirlit með ávöxtun og áhættu

Fyrir einstaklinga sem ýmist sjá um eignir sínar sjálfir, eða eru með eignasafnið dreift á milli ólíkra stýringaraðila getur verið erfitt og tímafrekt að halda yfirsýn yfir stöðu eigna, áhættu og árangur af eignastýringu.

ALM getur tekið að sér eftirlit með stöðu eigna, áhættu og árangri stýringar, hvort heldur sem um er að ræða stakar eignir eða stýringaraðili eða heildar eignasafn viðskiptavinar, en í þessu sambandi aðstoðar ALM einnig við mótun áhættustefnu og aðferða við eftirlit, áhættumælingar og viðbrögð við óhagfelldri þróun sé þess óskað.

Umfang eftirlitsins, bæði hvað varðar fjölda eigna og form og tíðni skýrslugjafar, er sniðið að þörfum viðskiptavinarins og getur verið  allt frá því að fylgjast með einu verðbréfi (t.d. skuldabréfi þar sem hætta er á afföllum sökum erfiðrar stöðu útgefandans) yfir í að fylgjast með stóru eignasafni sem dreifist á milli margra flokka verðbréfa (hlutabréf, skuldabréf, hrávörur, gjaldeyrir ...) og stýringaraðila. Niðurstöður af vinnu ALM eru á formi reglulegra og óreglulegra skýrslna og funda með viðskiptavinum, allt eftir því hvað hentar best.



ALM Fjármál - s: 460 6440